BRÍET hefur á síðustu árum skipað sér í fremstu röð íslensks tónlistarlífs. Hún hefur sent frá sér fjölda vinsælla laga og er þekkt fyrir sterka rödd, persónulegar lagasmíðar og einstaka sviðsframkomu. Tónlist BRÍETAR sameinar nútímalegt popp, kraft og tilfinningu og nær til breiðs hóps áhorfenda. Á sviði skilar hún fágaðri og eftirminnilegri tónleikaupplifun sem hentar sérstaklega vel fyrir tónlistarhátíðir, stórar árshátíðir, fyrirtækjaviðburði og aðra viðburði þar sem leitað er að einu af stærri nöfnum íslenskrar tónlistar.